Tónlistarkonan og tónskáldið Elín Halldórsdóttir

Elín Halldórsdóttir söngkona fæddist í Reykjavík 29. september árið 1969.   Hún hóf tónlistarnám 6 ára og píanónám 9 ára.  Hún gaf út 12 tommu plötuna TVÖ EIN með samnefndu lagi 15 ára.   Elín lærði söng, píanóleik og kórstjórn í Nýja Tónlistarskólanum og London College of Music við Thames Valley University.  Hún er með próf í kennslufræði listgreina frá Listaháskóla Íslands.

Elín hefur stýrt fjölmörgum kórum og hafa áherslur hennar mest verið með barnakórum innan grunnskólans og svo gospelkórum en hún kynntist gospelkórahefðinni þegar hún bjó í Köln og Regensburg í Þýskalandi og stýrði þar kórunum “Spirit of Joy” og  “Femmes Fatales”.  Hún hefur síðan stýrt ýmsum kórum og gert fjölda útsetninga.

Hér má hlusta á ævintýrasögu eftir Elínu: https://mms.is/namsefni/aevintyri-saedisar-skjaldboku-hljodefni

ImageImage

Tengt kennslustörfum hefur Elín skapað fjölda sönglaga og skrifað 5 söngleiki fyrir börn.   Þegar hún starfaði í Snælandsskóla í Kópavogi komu aðilar frá Menntamálastofnun í heimsókn í skólann og óskuðu í framhaldi eftir að gefa út söngleik hennar “Ævintýri Sædísar skjaldböku” sem fjallar um skjaldböku sem er föst í plasti og ævintýri hennar í undirdjúpunum og hvernig henni tekst að losna við plastið fyrir grunnskóla á Íslandi.   Það var vegna töluverðs streymis sönglaga hennar sem samin voru fyrir kennslu, sem ritstjórar hjá SoundCloud höfðu samband við Elínu árið 2020 og báðu hana að taka þátt í repost verkefninu, sem er dreifingarsamningur á miðla um allan heim, þar sem tónlist hlaðinni upp á SoundCloud er endurpóstað á 34 miðla í öllum heimsálfum.

Eftir það fóru hjólin að snúast hjá Elínu og það opnaðist nýr áheyrendahópur í mörgum löndum.  Hún samdi síðan fjölda rafrænna skífa og 4 Album, sem eru með áherslu á alþjóðlegan áheyrendahóp.     Síðustu tvö albúm hennar The Other Side og Multiverse eru með mest streymi í Bandaríkjunum en lönd í Evrópu, Suður Ameríku (Brasilía og Argentína), Asíu, Sovétlýðveldunum og fleiri koma meira inn.

Viðtöl við Elínu má lesa hér neðar:

https://collegeundergroundradio.com/blog/elin-halldorsdottir/


    Image
    Image
    ImageImage
    ImageImage






    Plötusafnið í heild sinni má hlusta hér.