Elín Halldórsdóttir

Tónlistarkona og tónskáld

Tónlistarkonan og tónskáldið Elín Halldórsdóttir

Elín Halldórsdóttir söngkona fæddist í Reykjavík 29. september árið 1969.   Hún hóf tónlistarnám 6 ára og píanónám 9 ára.  Hún gaf út 12 tommu plötuna TVÖ EIN með samnefndu lagi 15 ára.   Elín lærði söng, píanóleik og kórstjórn í Nýja Tónlistarskólanum og London College of Music við Thames Valley University.  Hún er með próf í kennslufræði listgreina frá Listaháskóla Íslands.

Elín hefur stýrt fjölmörgum kórum og hafa áherslur hennar mest verið með barnakórum innan grunnskólans og svo gospelkórum en hún kynntist gospelkórahefðinni þegar hún bjó í Köln og Regensburg í Þýskalandi og stýrði þar kórunum “Spirit of Joy” og  “Femmes Fatales”.  Hún hefur síðan stýrt ýmsum kórum og gert fjölda útsetninga.

Tengt kennslustörfum hefur Elín skapað fjölda sönglaga og skrifað 5 söngleiki fyrir börn.   Þegar hún starfaði í Snælandsskóla í Kópavogi komu aðilar frá Menntamálastofnun í heimsókn í skólann og óskuðu í framhaldi eftir að gefa út söngleik hennar “Ævintýri Sædísar skjaldböku” sem fjallar um skjaldböku sem er föst í plasti og ævintýri hennar í undirdjúpunum og hvernig henni tekst að losna við plastið fyrir grunnskóla á Íslandi.   Það var vegna töluverðs streymis sönglaga hennar sem samin voru fyrir kennslu, sem ritstjórar hjá SoundCloud höfðu samband við Elínu árið 2020 og báðu hana að taka þátt í repost verkefninu, sem er dreifingarsamningur á miðla um allan heim, þar sem tónlist hlaðinni upp á SoundCloud er endurpóstað á 34 miðla í öllum heimsálfum.

Eftir það fóru hjólin að snúast hjá Elínu og það opnaðist nýr áheyrendahópur í mörgum löndum.  Hún samdi síðan fjölda rafrænna skífa og 4 Album, sem eru með áherslu á alþjóðlegan áheyrendahóp.     Síðustu tvö albúm hennar The Other Side og Multiverse eru með mest streymi í Bandaríkjunum en lönd í Evrópu, Suður Ameríku (Brasilía og Argentína), Asíu, Sovétlýðveldunum og fleiri koma meira inn.

Elín lærði og iðkaði óperusöng í námi sínu og lærði einnig klassískan píanóleik.   Það má segja að stíllinn á tónlist  hennar sé lýrískt elektróniskt popp með andlegum boðskap um frið og kærleik í heiminum.  Hún reynir einnig í lögum sínum að upplýsa og vekja fólk til umhugsunar.

Elín segir sjálf um lögin sín að hún upplifi sig sem miðil eða millistykki og lögin flæði í gegnum hana frá æðri uppsprettu. Hún syngur, tekur upp og hljóðsetur flest lög sín.

Lýsa má stíl hennar sem lýrísku rafpoppi með andlegum boðskap.

Nýjustu plötu Elínar á Spotify má hlusta á hér neðar og hér má finna lög eftir tónlistarkonuna á Soundcloud.

Viðtal við Elínu hjá Glacer Magazine er hægt að lesa hér.

Annað vitað má lesa hér: https://collegeundergroundradio.com/blog/elin-halldorsdottir/


    Image
    Image